Erlent

Segist ekki hafa óskað eftir gögnum um Trump í pólitískum tilgangi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Susan Rice, ásamt eftirmanni sínum í starfi Michael Flynn. Þau eru nú bæði fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafar.
Susan Rice, ásamt eftirmanni sínum í starfi Michael Flynn. Þau eru nú bæði fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafar. Vísir/Getty
Háttsettur meðlimur innan ríkisstjórnar Barack Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, þjóðaröryggisráðgjafinn Susan Rice,  segir að fregnir þess efnis að hún hafi óskað eftir gögnum um meðlimi í kosningateymi Donald Trump, í pólitískum tilgangi, séu úr lausi lofti gripnar. Þær séu „algjörlega rangar.“ 

Um er að ræða fréttir frá miðlum líkt og Fox þar sem kemur fram að Rice hafi beðið leyniþjónustustofnanir þar í landi um upplýsingar um nöfn aðila innan kosningateymis Trump, sem taldir voru hafa talað við erlenda einstaklinga, sem voru undir eftirliti bandarísku leyniþjónustunnar. Ýmsir Repúblikanar hafa sakað Rice um að hafa lekið umræddum gögnum.

Trump sjálfur og aðilar tengdir honum hafa gripið þessar fregnir á lofti og túlkað þær sem staðfestingu á því að Obama hafi vissulega látið njósna um Trump, rétt eins og Trump hefur haldið fram sjálfur, án þess að geta bent á nokkur gögn því til stuðnings.

Almennt er talið að forsetinn hafi með ummælum sínum um njósnir Obama verið að reyna að dreifa athyglinni frá rannsókn Bandaríkjaþings og alríkislögreglunnar á tengslum hans og aðila innan kosningateymis hans við Rússland.

Þannig hefur til að mynda verið sýnt fram á að aðilar úr ríkisstjórn hans, líkt og Michael Flynn, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi hans og Jeff Sessions, dómsmálaráðherra, hafi átt í samskiptum við rússneska ráðamenn á meðan kosningabaráttunni stóð.

Það er sérlega óheppilegt, þar sem bandarískar leyniþjónustustofnanir telja sannað að Rússar hafi haft afskipti af forsetakosningunum.

Forsetinn hefur alla tíð neitað því að hann tengist Rússlandi með óeðlilegum hætti.

Aðspurð segir Rice, að hún hafi vissulega beðið um nöfn bandaríska einstaklinga sem hafi verið í tengslum við einstaklinga undir eftirliti, en hún hafi aldrei gert slíkt í pólítískum tilgangi.

Hún segir að það hafi litið út fyrir að Rússar væru að reyna að hafa áhrif á kosningar þar í landi og „að hún hafi sinnt skyldu sinni sem þjóðaröryggisráðgjafi“ með því að falast eftir þessum upplýsingum. Það hafi verið hennar hlutverk að vega og meta mikilvægi slíkra upplýsinga hverju sinni.

Þá segir Rice að ásakanir Trump og fleiri Repúblikana í sinn garð séu algjörlega „tilhæfulausar og tengist ekki raunveruleikanum á nokkurn hátt.“


Tengdar fréttir

Hefja rannsókn á afskiptum Rússa

Öldungadeild Bandaríkjaþings bætist í hóp þeirra sem rannsaka afskipti Rússa af bandarísku kosningunum sem bandarískar leyniþjónustustofnanir fullyrða að hafi átt sér stað.

Flynn fer fram á friðhelgi gegn vitnisburði

Fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trump er sagður sækjast eftir friðhelgi frá saksókn gegn því að bera vitni um tengsl forsetans við Rússland.

Flynn greindi ekki frá greiðslum frá rússneskum fyrirtækjum

Michael Flynn, fyrrum ráðgjafi Donalds Trump í þjóðaröryggismálum, lét hjá líða að gera grein fyrir greiðslum sem hann fékk frá rússneskri sjónarvarpsstöð og öðru fyrirtæki tengdu Rússlandi í greinargerð um launagreiðslur sínar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×