Naktir í náttúrunni í Hveragerði: „Þetta er ótrúlega frelsandi“ Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 28. janúar 2017 20:13 Þessir sexmenningar ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. vísir/mhh
Sex karlar í Hveragerði ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því þeir munu taka að sér næstu vikurnar að berhátta sig fyrir áhorfendur sem mæta á sýninguna „Naktir í náttúrunni“ hjá Leikfélagi Hveragerðis. Leikararnir segja ótrúlega frelsandi að vera berrassaðir á sviðinu.vísir/mhhLeikfélag Hveragerðis fagnar 70 ára afmæli á árinu og því var ákveðið að ráðast í alvöru verk á afmælisárinu, „Naktir í náttúrunni“. Handritið byggir á kvikmyndinni „The full monty“ en er staðfært að Hveragerði. Æfingar hafa staðið yfir síðustu sex vikur og nú er byrjað að sýna leikritið á fullum krafti við góðar viðtökur. „Verkið gengur út á garðyrkjubændur sem eru í kröggum af því að rafmagnsverðið er svo hátt að þeir þurfa að strippa til þess að fá auka pening og halda konukvöld í sveitinni," segir Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri. „Við erum montin af því að vera svona öflugt áhugaleikfélag og höfum tekið á móti þúsundum manna oft á tíðum,“ segir Hjörtur Benediktsson, formaður Leikfélags Hveragerðis.vísir/mhhKarlarnir sex sem leika í strippatriðunum segja ekkert mál að klæða sig úr öllum fötunum fyrir áhorfendur. Strippararnir Sigurður Sólmundarson og Runólfur Óli Daðason segja nektina venjast vel. Hún sé í raun mjög frelsandi. „Maður er voðalega mikið að skipta í og úr og er mjög mikið nakinn. Þetta venst voðalega vel. Ég er til dæmis farinn að vera mjög mikið nakinn í vinnunni, mér finnst það mjög þægilegt,“ segir Sigurður og tekur Runólfur í sama streng: „Þetta er ótrúlega frelsandi. Þetta er miklu meira frelsandi en maður hélt fyrst,“ segir Runólfur. Maður er voðalega mikið aðskipta í og úr og er mjög mikið nakinn. Þetta venst voðalega vel, ég er farinn til dæmis að vera mjög mikið nakinn í vinnunni mér finnst það mjög þægilegt.vísir/mhh
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Viðurkennir ónákvæmt svar um fundi án Harðar Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Sjá meira