Fyrsti sigur Pólverja kom alltof seint | Katar er komið áfram í sextán liða úrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2017 18:30 HM hefur verið ein samfelld martröð fyrir Talant Dujshebaev og lærisveina hans í pólska landsliðinu. Vísir/EPA
Katarbúar eru komnir í sextán liða úrslitin á HM í handbolta í Frakklandi eftir fjögurra marka sigur á Argentínumönnum í dag. Argentínumenn gengu hreinlega á vegg á fyrstu 30 mínútunum. Pólverjar eru á leiðinni í Forsetabikarinn eftir töp í fyrstu þremur leikjum sínum en þeir náðu loksins að fagna sigri á móti Japan í dag. Vandamálið er að það skilar sér skammt og ekki einu sinni sigur á Frökkum í lokaleiknum kemur þeim í sextán liða úrslitin. Katar vann Argentínu 21-17 en fyrri hálfleikurinn er eitt það ótrúlegasta sem hefur sést á HM. Katarliðið var nefnilega 9-2 yfir í hálfleik en gat leyft sér að slaka á í vörninni í seinni hálfleiknum sem endaði 15-12 fyrir Argentínumenn. Argentínska liðið skoraði því sjö sinnum fleiri mörk í seinni hálfleiknum en þeim fyrri. Sigurinn tryggir Katarbúum sæti í sextán liða úrslitunum þrátt fyrir að einn leikur sé eftir. Pólland vann 26-25 sigur á Japan eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik, 11-9. Pólverjar voru 16-14 undir þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir en skoruðu þá fjögur mörk í röð á tveggja mínútna kafla og snéru með því leiknum. Pólverjar eiga lokaleik sinn á móti Frökkum en geta aldrei komist upp fyrir Rússland og Brasilíu sem unnu bæði innbyrðisleiki liðanna. Pólverjar töpuðu með fjórum mörkum á móti Brössum og með fjórum mörkum á móti Rússum.
Handbolti HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Frakkland - Spánn | Sæti í úrslitaleiknum undir Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira