Handbolti

Landsliðshornamennirnir markahæstir hjá sínum liðum í kvöld

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur hefur spilað vel upp á síðkastið.
Guðjón Valur hefur spilað vel upp á síðkastið. vísir/afp
Það var ólíkt gengi Íslendingaliðanna í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í liði Rhein-Neckar Löwen sem vann tíu marka sigur, 23-33, á Minden á útivelli.

Guðjón Valur skoraði níu mörk úr aðeins 11 skotum. Alexander Petersson skoraði tvö mörk.

Löwen er komið á toppinn í þýsku deildinni en liðið hefur unnið átta leiki í röð.

Björgvin Páll Gústavsson, Arnór Þór Gunnarsson og félagar í Bergischer hafa hins vegar tapað fimm leikjum í röð og eru í sautjánda og næstneðsta sæti deildarinnar.

Í kvöld laut Bergischer í gras fyrir Magdeburg á heimavelli, 24-31.

Arnór var markahæstur hjá Bergischer með sex mörk en fjögur þeirra komu úr vítum. Björgvin Páll varði átta skot (20,5%) og skoraði eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×