Handbolti

Daníel varði rúman helming þeirra skota sem hann fékk á sig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Daníel Freyr varði 18 skot.
Daníel Freyr varði 18 skot. vísir/vilhelm
Daníel Freyr Andrésson átti frábæran leik í marki Ricoh sem vann öruggan níu marka sigur, 17-26, á Ystad í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Daníel skellti hreinlega í lás í markinu og varði 18 af þeim 32 skotum sem hann fékk á sig í leiknum. Það gerir 56% hlutfallsmarkvörslu.

Ricoh var miklu sterkari aðilinn í leiknum og leiddi nær allan tímann. Heimamenn jöfnuðu metin í 14-14 þegar 19 mínútur voru eftir en þá gáfu leikmenn Ricoh í, skoruðu 12 af síðustu 15 mörkum leiksins og tryggðu sér níu marka sigur, 17-26.

Hinn Hafnfirðingurinn í liði Ricoh, Magnús Óli Magnússon, skoraði eitt mark í leiknum í kvöld.

Ricoh er í 9. sæti deildarinnar með sjö stig, einu stigi frá sæti í úrslitakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×