Handbolti

Óvænt tap Kiel

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alfreð á hliðarlínunni.
Alfreð á hliðarlínunni. vísir/getty
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel töpuðu með þriggja marka mun, 27-24, fyrir Wetzlar á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Tapið var nokkuð óvænt, en Wetzlar leidid meðal annars 15-10 í hálfleik. Þetta var liður í annari umferð deildarinnar.

Kiel náði mest að minnka muninn í tvö mörk í síðari hálfleik, en nær komust þeir ekki og þriggja marka tap staðreynd, 27-24.

Marko Vujin var markahæstur hjá Kiel með fjögur mörk, en Jannik Kohlbacher skoraði fimm mörk fyrir Wetzlar.

Bæði liðin eru því með tvö stig eftir fyrstu tvo leikina í þýsku deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×