Körfubolti

Man nöfnin á öllum þeim 34 sem voru valdir á undan honum | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Draymond Green er mjög líflegur og litríkur leikmaður.
Draymond Green er mjög líflegur og litríkur leikmaður. Vísir/Getty
Draymond Green er frábær körfuboltamaður sem er heldur betur búinn að skapa sér nafn í NBA-deildinni í körfubolta með frábærri frammistöðu sinni með liði Golden State Warriors síðustu tímabil.

Draymond Green varð meistari með Golden State Warriors í fyrra og er núna á fullu að hjálpa sínu liði upp úr 3-1 holu á móti Oklahoma City Thunder í úrslitum Vesturdeildarinnar en staðan er nú 3-2 fyrir Thunder.

Draymond Green hjálpaði Golden State Warriors að vinna 73 af 82 deildarleikjum sínum í vetur og hann var valinn í annað úrvalslið NBA eftir að hafa verið með 14,0 stig, 9,5 fráköst og 7,4 stoðsendingar að meðaltali í leik en auk þess var hann með 1,2 stolinn bolta og 1,0 varið skot að meðaltali. Engin smá tölfræði þar á ferðinni.

Draymond Green er samt alls ekki búinn að gleyma því að hann var valinn númer 35 í nýliðavalinu 2012 og þeirri staðreynd að það voru 34 leikmenn valdir á undan honum. Auðvitað er hann búinn að gera mun betur en flestir þeirra. Það breytir því ekki að strákurinn er ennþá mjög sár.

Eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan þá getur Draymond Green þulið upp þá 34 leikmenn sem voru valdir á undan honum í þessu nýliðavali en meðal þeirra eru frábærir leikmenn eins og Anthony Davis og Damian Lillard en líka menn sem hafa ekki gert mikið í NBA-deildinni.

Draymond Green var meira að segja langt frá því að vera fyrsti leikmaðurinn sem Golden State Warriors valdi í þessu nýliðavali fyrir fjórum árum því liðsfélagar hans, Harrison Barnes (7. val) og Festus Ezeli (30. val) voru báðir valdir á undan honum.

Það er hægt að sjá mynbandið með upptalningu Draymond Green hér fyrir neðan og við látum listann fylgja með þeim 34 sem voru valdir á undan Draymond Green.



Nýliðavalið í NBA-deildinni sumarið 2012:

1    Anthony Davis    New Orleans Hornets

2    Michael Kidd-Gilchrist    Charlotte Bobcats

3    Bradley Beal    Washington Wizards

4    Dion Waiters    Cleveland Cavaliers

5    Thomas Robinson    Sacramento Kings

6    Damian Lillard    Portland Trail Blazers (frá Brooklyn)

7    Harrison Barnes    Golden State Warriors

8    Terrence Ross    Toronto Raptors

9    Andre Drummond    Detroit Pistons

10    Austin Rivers    New Orleans Hornets (frá Minnesota í gegnum L.A. Clippers)

11    Meyers Leonard    Portland Trail Blazers

12    Jeremy Lamb    Houston Rockets (frá Milwaukee)

13    Kendall Marshall    Phoenix Suns

14    John Henson    Milwaukee Bucks (frá  Houston)

15    Maurice Harkless    Philadelphia 76ers

16    Royce White    Houston Rockets (frá New York)

17    Tyler Zeller    Dallas Mavericks (skipt til Cleveland)

18    Terrence Jones    Houston Rockets (frá Utah í gegnum Minnesota)

19    Andrew Nicholson    Orlando Magic

20    Evan Fournier    Denver Nuggets

21    Jared Sullinger    Boston Celtics

22    Fab Melo    Boston Celtics (frá L.A. Clippers í gegnum Oklahoma City)

23    John Jenkins    Atlanta Hawks

24    Jared Cunningham    Cleveland Cavaliers (frá L.A. Lakers,skipt til Dallas)

25    Tony Wroten    Memphis Grizzlies

26    Miles Plumlee    Indiana Pacers

27    Arnett Moultrie    Miami Heat (skipt til Philadelphia)

28    Perry Jones III    Oklahoma City Thunder

29    Marquis Teague    Chicago Bulls

30    Festus Ezeli    Golden State Warriors (frá San Antonio)

31    Jeffery Taylor    Charlotte Bobcats

32    Tomáš Satoranský#    Washington Wizards

33    Bernard James    Cleveland Cavaliers (skipt til Dallas)

34    Jae Crowder    Cleveland Cavaliers (frá New Orleans í gegnum Miami, skipt til Dallas)

35    Draymond Green    Golden State Warriors (frá  Brooklyn)

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×