Handbolti

Guðjón Valur skoraði fimm í 21. sigri Barcelona

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðjón Valur fagnar marki í búningi Barcelona.
Guðjón Valur fagnar marki í búningi Barcelona. vísir/getty
Barcelona heldur áfram að vinna handboltaleiki á Spáni, en þeir unnu sinn 21. sigur í 21 leikjum í kvöld þegar liðið vann 40-20 sigur á Fertiberia Puerto Sagunto í kvöld.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk úr sjö skotum fyrir Spánarmeistaranna sem stefna á að fara í gegnum deildartímabilið án þess að tapa leik. Fjögur þeirra voru úr hraðaupphlaupum og eitt af vítalínunni.

Staðan í hálfleik var 22-11 og gestirnir frá Barcelona héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og unnu að lokum afar öruggan sigur, en sex leikir eru eftir af tímbilinu.

Í Frakklandi gerðu Nimes 31-31 jafntefli við Creteil. Nimes er í níunda sæti deildarinnar með 20 stig eftir 21 leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×