Handbolti

Bjarki skoraði tvö og Refirnir unnu mikilvægan sigur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bjarki skoraði tvö mörk úr þremur skotum í dag.
Bjarki skoraði tvö mörk úr þremur skotum í dag. vísir/anton brink
Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk fyrir Füchse Berlín sem vann þriggja marka sigur á Wetzler, 23-20, í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Berlínar-refirnir byrjuðu vel og skoruðu þrjú fyrstu mörkin. Þeir leiddu svo með þremur mörkum í hálfleik, 12-9.

Þeir hleypu Wetzler aldrei nálægt sér í síðari hálfleik og unnu að lokum góðan þriggja marka sigur, 23-20.

Fabian Wiede skoraði sex mörk fyrir Füchse, en þeir Mazimilian Holst og Jannik Kohlbacher voru markahæstir hjá Wetzlar með fimm mörk hvor.

Füchse er í fimmta sætinu með 33 stig, en Wetzlar er sæti neðar með tveimur stigum minna þannig að sigurinn var gífurlega mikilvægur fyrir Erling Richardsson og lærisveina hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×