Körfubolti

Allt eftir bókinni í NBA | Myndbönd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kyrie Irving var frábær í nótt.
Kyrie Irving var frábær í nótt. vísir/getty
Leikir næturinnar í úrslitakeppni NBA-deildarinnar voru lítt spennandi og úrslit eftir bókinni.

Það var helst í leik Cleveland og Detroit sem það var einhver smá spenna en í öðrum leikjum unnust stórsigrar.

LeBron James þurfti ekki að draga vagninn einn fyrir Cleveland að þessu sinni því Kyrie Irving skoraði 31 stig í nótt og Kevin Love skoraði 28. James gat leyft sér að láta 22 stig duga að þessu sinni.

San Antonio valtaði yfir Memphis en þetta var stærsta tap í sögu Memphis í úrslitakeppninni.

Miami var einnig afar sannfærandi gegn Charlotte og Clippers keyrði á fullu gasi yfir Portland.

Úrslit:

Cleveland-Detroit  106-101

1-0 fyrir Cleveland

Miami-Charlotte  123-91

1-0 fyrir Miami

San Antonio-Memphis  106-74

1-0 fyrir San Antonio

LA Clippers-Portland  115-95

1-0 fyrir Clippers

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×