Handbolti

Deildarmeistararnir á góðri siglingu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurbergur í leik með íslenska landsliðinu.
Sigurbergur í leik með íslenska landsliðinu. Vísir
Team Tvis Holstebro heldur uppteknum hætti í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta en liðið hafði betur gegn Bjerringbro/Silkeborg í kvöld, 30-28.

Sigurbergur Sveinsson skoraði fjögur mörk fyrir Team Tvis og Egill Magnússon eitt.

Team Tvis hefur unnið báða leiki sína í sínum riðli í úrslitakeppninni en liðið varð deildarmeistari í vetur og tók tvö stig með sér áfram í úrslitakeppnina.

Team Tvis er því með sex stig í efsta sæti riðilsins en Bjerringbro/Silkeborg er með tvö stig, Skjern eitt og SönderjyskE er án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×