Handbolti

Þetta gerðu Íslendingarnir í Evrópuboltanum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór Atlason.
Arnór Atlason. Vísir/AFP
Lokaumferð deildarkeppninnar í dönsku úrvalsdeildinni fór fram í kvöld og er því ljóst hvernig liðin fara inn í úrslitakeppnina.

Fyrir leikina var ljóst að Team Tvis Holstebro væri deildarmeistari en liðið mætti ríkjandi Danmerkurmeisturunum í KIF Kolding Kobenhavn og varð niðurstaðan jafntefli, 24-24.

Egill Magnússon skoraði fimm mörk fyrir Team Tvis en úrslitin má sjá hér fyrir neðan, sem og riðlana tvo í úrslitakeppninni og stigin sem liðin taka með sér þangað. Sigurvegari hvors riðils mætast svo í úrslitarimmu um meistaratitilinn.

Þýskaland

Fjórir leikir fóru fram í þýsku deildinni í kvöld. Rhein-Neckar Löwen, Flensburg og Füchse Berlin unnu nokkuð örugga sigra og Magdeburg marði óvæntan Göppingen á heimavelli.

Löwen er enn á toppi deildarinnar með 42 stig, tveimur stigum á undan Flensburg. Kiel er svo í þriðja sætinu með 38 stig en á tvo leiki til góða.

Füchse Berlin er í fimmta sætinu og er nú tveimur stigum á undan Göppingen eftir tap síðarnefnda liðsins í kvöld. Magdeburg er í tíunda sætinu.

Frakkland

Arnór Atlason og félagar í Saint Raphael tapaði stigi er liðið mætti Ivry á útivelli en liðið er engu að síður enn í öðru sæti deildarinnar, þremur stigum á undan næsta liðið.

Snorri Steinn Guðjónsson, Arnór Örn Hallgrímsson og félagar í Nimes töpuðu svo á útivelli fyrir Chambery. Nimes er í áttunda sætinu með átján stig.

PSG er með örugga forystu á toppi deildarinnar með 34 stig, sjö stigum á undan Saint Raphael.

Úrslitin í Danmörku:

Århus - GOG 31-27

Sigvaldi Guðjónsson 0 - (engin Íslendingur)

Mors-Thy - SönderjyskE 25-28

Guðmundur Ólafsson 1, Róbert Aron Hostert 0 - Árni Steinþórsson 0, Daníel Andrésson (markvörður).

Skive - Midtjylland 16-27

(enginn Íslendingur) - Vignir Svavarsson 3.

Skjern - Nordsjælland 23-30

(enginn Íslendingur) - Jóhann K. Reynisson (ekki í hóp)

Team Tvis Holstebro - KIF Kolding Kobenhavn 24-24

Egill Magnússon 5, Sigurbergur Sveinsson (ekki í hóp)  - (enginn Íslendingur)

Skanderborg - Ribe-Esbjerg 25-28

(engir Íslendingar í liðunum)

Bjerringbro/Silkeborg - Álaborg 24-19

(engir Íslendingar í liðunum)

Riðill 1:

Team Tvis 2 stig

Bjerringbro/Silkeborg 1 stig

KIF 0 stig

SönderjyskE 0 stig

Riðill 2:

Århus 2 stig

Skjern 1 stig

GOG 0 stig

Álaborg 0 stig

Úrslitin í Þýskalandi:

Rhein-Neckar Löwen - Bergischer 28-20

Stefán Rafn Sigurmarnnson 5, Alexander Petersson 0 - Arnór Þór Gunnarsson 5/4.

Lemgo - Füchse Berlin 26-34

(enginn Íslendingur) - Bjarki Már Elísson 5/2.

Balingen - Flensburg 22-29

Magdeburg - Göppingen 28-27

Úrslit Íslendingaliðanna í Frakklandi:

Ivry - Saint Raphael 30-30

(enginn Íslendingur) - Arnór Atlason 4.

Chambery - Nimes 29-25

(enginn Íslendingur) - Snorri Steinn Guðjónsson 6, Ásgeir Örn Hallgrímsson 0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×