Handbolti

Aron með eitt mark í öruggum sigri Veszprém

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Aron í leik með Veszprém á dögunum.
Aron í leik með Veszprém á dögunum. Vísir/EPA
Aron Pálmarsson og félagar í ungverska meistaraliðinu Veszprém unnu öruggan 9 marka sigur á Balatonfüredi KSE í úrslitakeppni ungversku deildarinnar á útivelli í dag.

Veszprém lék í dag aðeins tveimur dögum eftir að hafa rúllað yfir Motor Zaporozhye í 12-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en það mátti ekki sjá neina þreytu hjá leikmönnum liðsins.

Veszprém náði forskotinu strax á upphafsmínútum og náði sjö marka forskoti snemma leiks sem liðið hélt allt til loka fyrri hálfleiks í stöðunni 11-18.

Sigurinn var aldrei í hættu í seinni hálfleik en Veszprém leiddi með níu mörkum þegar korter var til leiksloka og hélt því forskoti allt til loka leiksins.

Aron Pálmarsson hafði hægt um sig í leiknum en hann komst á blað með eitt mark. Andreas Nilsson var atkvæðamestur í ungverska liðinu með sex mörk en Péter Gulyás bætti við fimm mörkum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×