Körfubolti

Krúttlegt atvik í NBA: Lítill strákur hljóp inn á og faðmaði Anthony | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Maður leiksins.
Maður leiksins. vísir/getty
Óvænt uppákoma átti sér stað undir lokin á leik New York Knicks og New Orleans Hornets í NBA-deildinni í nótt.

Þegar tæp mínúta var til leiksloka náði lítill gutti að lauma sér inn á völlinn og hljóp beint að Carmelo Anthony, aðalstjörnu New York, og faðmaði hann. Anthony segir að honum hafi brugðið þegar hann fann einhvern halda utan um lærið á sér.

„Mér brá. Ég vissi ekkert hver þetta var fyrr en ég horfði niður og sá að þetta var lítill strákur,“ sagði Anthony sem klappaði drengnum vinalega á kollinn áður en einn af dómurum leiksins, Kevin Cutler, vísaði honum út af.

„Þeir horfðu í gegnum fingur sér og leyfðu honum að fara fyrst þetta var lítill strákur. En þetta er öryggismál,“ sagði Anthony en ekki er víst hvort aðstandendur stráksins voru áminntir eða sektaðir fyrir atvikið.

New Orleans vann leikinn, 99-91, en Anthony skoraði 22 stig í leiknum.

Þetta krúttlega atvik má sjá í myndbandinu hér að neðan.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×