Handbolti

Árni Þór bjargaði stigi fyrir Aue

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Árni Þór Sigtryggsson.
Árni Þór Sigtryggsson. vísir/stefán
Árni Þór Sigtryggsson sá til þess að EHV Aue fékk stig gegn Bietigheim í þýsku B-deildinni í kvöld.

Árni Þór skoraði þá jöfnunarmark fyrir Aue er 32 sekúndur voru eftir. Lokatölur 25-25.

Hann átti stórleik þess utan fyrir sitt lið og skoraði sjö mörk. Bróðir hans, Rúnar Sigtryggsson, er þjálfari liðsins.

Bjarki Már Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Aue í leiknum en liðið er í sjöunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×