Handbolti

Ólafur markahæstur á vellinum í sigri Kristianstad

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ólafur er að gera góða hluti í Svíþjóð.
Ólafur er að gera góða hluti í Svíþjóð. vísir/kristianstad
Ólafur Guðmundsson var markahæstur með sjö mörk þegar deildarmeistararnir í Svíþjóð, Kristianstad, unnu níu marka sigur á Guif, 32-23.

Kristianstad var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 18-14, og steig bara á bensíngjöfina í síðari hálfleik og rúlluðu yfir Guif.

Ólafur skoraði sjö mörk og var markahæstur fyrir deildarmeistarana, en þeir urðu deildarmeistarar í síðustu viku.

Kristján Andrésson þjálfar lið Guif, en Daniel Ekman og Helge Freiman voru markahæstir hjá þeim með sex mörk hvor. Guif er í sjöunda sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×