Curry með 35 stig í enn einum heimasigri Golden State | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. febrúar 2016 07:02 Steph Curry og Dwight Howard eigast við. vísir/getty
Fimm leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Meistarar Golden State Warriors unnu sinn 42. leik á heimavelli í röð þegar liðið lagði Houston Rockets að velli, 123-110. Golden State vantar nú aðeins tvo heimasigra í í viðbót til að jafna met Chicago Bulls sem vann 44 leiki á heimavelli í röð frá 30. mars 1995 til 4. apríl 1996. Steph Curry var stigahæstur í liði Golden State í nótt með 35 stig en hann gaf einnig níu stoðsendingar. Harrison Barnes kom næstur með 19 stig. James Harden skoraði 37 stig fyrir Houston og Dwight Howard var með myndarlega tvennu, 16 stig og 15 fráköst. San Antonio Spurs vann sinn fimmta leik í röð þegar liðið bar sigurorð af Miami Heat, 101-119, á útivelli. LaMarcus Aldrigde skoraði 28 stig fyrir San Antonio og Kawhi Leonard 23 stig. Dwayne Wade var stigahæstur hjá Miami með 20 stig. John Wall skoraði 28 stig og gaf 17 stoðsendingar þegar Washington Wizards vann þriggja stiga sigur, 108-111, á New York Knicks. Þetta var fyrsti leikur New York undir stjórn Kurt Rambis sem tók við liðinu eftir að Derek Fisher var látinn taka pokann sinn. Þá vann Milwaukee Bucks eins stigs sigur á Boston Celtics, 112-111, og Utah hafði betur gegn Dallas Mavericks, 119-121, eftir framlengdan leik. Gordon Hayward tryggði Utah sigurinn með flautukörfu.Úrslitin í nótt: Golden State 123-110 Houston Miami 101-119 San Antonio NY Knicks 108-111 Washington Milwaukee 112-111 Boston Dallas 119-121 UtahJohn Wall og Carmelo Anthony voru flottir í nótt Gordon Hayward skorar sigurkörfu Utah gegn Dallas
NBA Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Íslenski boltinn Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Róbert Frosti fagnaði sigri en Brann kastaði frá sér góðri forystu Fótbolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira