Þórey hefur komið að undirbúningi hátíðarinnar með einhverjum hætti frá því hún var stofnuð árið 2010 og segir gríðarlegan mun á hátíðinni milli ára. „Það var svo gaman að heyra gesti segja strax eftir sýningarnar að þeir gætu ekki beðið eftir því að kaupa fötin af sýningunum, ég hef ekki fundið fyrir þessari spennu áður en það er ótrúlega jákvætt,“ segir hún.
Allt skipulag í kringum hátíðina segir Þórey að hafa gengið vel enda hörkuduglegt og skemmtilegt starfsfólk sem vann vel saman að sama markmiðinu. hafa verið óaðfinnanlegt, en á bakvið svona batterý er um 180 manna teymi, sem sér um skipulag, dagskrárgerð, akstur á erlendum gestum, hár, förðun og fleira. „Hár og makeup teymin frá MAC og Label M voru á heimsmælikvarða. Hönnuðirnir, fjölmiðlaumfjöllunin og bara allt eins og best var á kosið. Það kom smá hikst við að koma fólki inn í salinn á fyrstu sýninguna en það er eðlilegt þegar allt er að fara að stað .“
Sýningarnar segir hún hafa verið einstaklega fjölbreyttar. „Það er gaman að sjá hvað margir hönnuðir eru komnir með listræna stjórnendur á sýningunum sýnum, sem sýnir að þetta er þverfaglegt verkefni. Sýningarnar voru allar ólíkar og fantaflottar.“
Þórey segist ekki vita betur en að erlendu gestir hátíðarinnar hafi verið ánægðir með hana.
„Ég held þau hafi almennt verið sátt, annars verðum við bara að bíða og sjá hvað þau segja í umfjöllunum um RFF. Þau eru alltaf jafn hissa á að við séum bara 300 þúsund og gefum mörgum stórum sýningum úti ekkert eftir,“ bætir Þórey við.

Þórey segir þó mikilvægt að við íslendingar höldum okkur á jörðinni. „Við verðum að passa okkur að bera okkur ekki of mikið saman við önnur lönd, því hér eru ekki sömu tækifæri og þar. Ég held að það sé hollt fyrir okkur að spá ekki of mikið í stóru merkjunum, þar sem bransinn er kominn á allt annan stað. Hinsvegar megum við ekki gleyma að það er ekki langt síðan Listaháskólinn var stofnaður og hvað það er að koma flott fagfólk frá þeim.“