Körfubolti

OKC slátraði Lakers

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kevin Durant var flottur í gær.
Kevin Durant var flottur í gær. vísir/getty
Fimm leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt en þar ber helst að nefna sigur Memphis á Indiana Pacers, 96-84.

Paul George var með 29 stig fyrir Pacers og Mike Conley var með tuttugu stig fyrir Memphis.

OKC hreinlega slátraði L.A. Lakers með fjörutíu stiga mun, 118-78, en Kevin Durant skoraði 22 stig fyrir OKC. Kobe Bryant var ekki með í nótt vegna meiðsla á öxl.

Þá vann Houston Rockets fínan sigur á L.A. Clippers, 107-97, en Dwight Howard átti fínan leik, skoraði 22 stig og tók 14 fráköst.

New York Knicks vann Bulls, 107-91 og Washington Wizards tók Charlotte Hornets, 109-101.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×