Körfubolti

Sjöundi sigur San Antonio í röð | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leonard fór fyrir San Antonio gegn Minnesota.
Leonard fór fyrir San Antonio gegn Minnesota. vísir/afp
Þrettán leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt.

San Antonio Spurs vann sinn sjöunda leik í röð þegar liðið lagði Minnesota Timberwolves að velli, 83-108.

Liðsheildin var sterk hjá San Antonio en sex leikmenn liðsins skoruðu 10 stig eða fleiri í leiknum. Kawhi Leonard var þeirra stigahæstur með 19 stig en Tony Parker kom næstur með 14 stig.

Zach LaVine skoraði mest fyrir Minnesota, eða 17 stig, en Úlfarnir töpuðu frákastabaráttunni í leiknum 47-31.

San Antonio hefur unnið 25 af 30 leikjum sínum í vetur og situr í 2. sæti Vesturdeildarinnar á eftir Golden State Warriors sem vann Utah Jazz í nótt, 103-85. Meistararnir hafa unnið 27 leiki í vetur og aðeins tapað einum.

Skvettubræðurnir Klay Thompson og Stephen Curry voru atkvæðamestir hjá Golden State í nótt en þeir skoruðu samtals 36 stig (Thompson 20 og Curry 16). Draymond Green átti einnig hörkuleik með 15 stig, níu fráköst og sex stoðsendingar.

Oklahoma City Thunder rúllaði yfir Los Angeles Lakers, 85-120, á útivelli. Þetta var sjötti sigur Þrumunnar á Lakers í röð.

Oklahoma var mun sterkari aðilinn í leiknum, gegn Lakers-liði sem hefur aðeins unnið fimm leiki í vetur.

Russell Westbrook var stigahæstur í liði Oklahoma með 23 stig en hann tók einnig átta fráköst og gaf átta stoðsendingar. Kevin Durant kom næstur með 21 stig.

Kobe Bryant skoraði 19 stig fyrir Lakers en hann hitti aðeins úr sjö af 22 skotum sínum í leiknum.

Úrslitin í nótt:

Minnesota 83-108 San Antonio

Golden State 103-85 Utah

LA Lakers 85-120 Oklahoma

Phoenix 96-104 Denver

New Orleans 115-89 Portland

Milwaukee 113-100 Philadelphia

Atlanta 107-100 Detroit

Brooklyn 118-119 Dallas

Washington 100-91 Memphis

Orlando 104-101 Houston

Indiana 106-108 Sacramento

Cleveland 91-84 NY Knicks

Charlotte 89-102 Boston

Steph Curry fer illa með Derrick Favors LeBron James og Kristpas Porzingis áttust við í Cleveland í nótt Flottustu tilþrif næturinnar
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×