Handbolti

Örn Ingi með tvö mörk í sigri Hammarby

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Örn Ingi og félagar hafa unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum.
Örn Ingi og félagar hafa unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum. vísir/stefán
Örn Ingi Bjarkason skoraði tvö mörk fyrir Hammarby sem vann eins marks sigur, 24-25, á Malmö í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Þetta var þriðji sigur Hammarby í síðustu fjórum leikjum en liðið er í 6. sæti deildarinnar með 18 stig. Átta efstu liðin fara í úrslitakeppnina í vor.

Örn Ingi hefur skorað 28 mörk fyrir Hammarby í vetur en hann kom til liðsins frá Aftureldingu fyrir tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×