Körfubolti

Milwaukee batt enda á sigurgöngu Golden State | Úrslitin í nótt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Greg Monroe skorar tvö af 28 stigum sínum gegn Golden State.
Greg Monroe skorar tvö af 28 stigum sínum gegn Golden State. vísir/getty
Milwaukee Bucks varð í nótt fyrsta liðið til að vinna Golden State Warriors í NBA-deildinni í vetur. Lokatölur 108-95, Milwaukee í vil en liðið er það fyrsta sem heldur Golden State í tveggja stafa skori í vetur. Golden State vann fyrstu 24 leiki sína á tímabilinu áður en Milwaukee batt enda á sigurgönguna í nótt.

Greg Monroe fór fyrir liði Milwaukee með 28 stig og 11 fráköst en hann hitti úr 11 af 16 skotum sínum utan af velli í leiknum. Þá náði Giannis Antetokounmpo sinni fyrstu þrennu á ferlinum en hann skoraði 11 stig, tók 12 fráköst og gaf 10 stoðsendingar.

Stephen Curry var stigahæstur í liði Golden State með 28 stig en Draymond Green kom næstur með 24 stig og 11 fráköst.

Carmelo Anthony skoraði 37 stig, þar af 20 í fyrri hálfleik, þegar New York Knicks vann tveggja stiga sigur, 110-112, á Portland Trail Blazers á útivelli. Þetta var langþráður sigur hjá New York sem hafði tapað fjórum leikjum í röð áður en að leiknum í nótt kom.

Damian Lillard skoraði 29 stig fyrir Portland sem er í 11. sæti Vesturdeildarinnar.

San Antonio Spurs spilaði frábæran varnarleik þegar liðið lagði Atlanta Hawks að velli, 78-103, á útivelli.

Haukarnir áttu í mestu vandræðum með að skora í leiknum en þeir gerðu aðeins 25 stig í fyrri hálfleik sem er það minnsta hjá liði í einum hálfleik í deildinni í vetur.

Kawhi Leonard skoraði 22 stig fyrir San Antonio sem var með 50% þriggja stiga nýtingu í leiknum. Paul Millsap var stigahæstur hjá Atlanta með 22 stig.

Úrslitin í nótt:

Milwaukee 108-95 Golden State

Portland 110-112 New York

Atlanta 78-103 San Antonio

Brooklyn 100-105 LA Clippers

Charlotte 93-98 Boston

Detroit 118-96 Indiana

Chicago 98-94 New Orleans

Houston 126-97 LA Lakers

Dallas 111-114 Washington

Carmelo Anthony og Damian Lillard voru heitir í nótt Anthony Davis treður yfir Pau Gasol Bestu tilþrif næturinnar
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×