Handbolti

Draumabyrjun Ólafs hjá Kristianstad

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur í leik með Kristianstad.
Ólafur í leik með Kristianstad. Mynd/Heimasíða Kristianstad
Ólafur Guðmundsson fer vel af stað með Kristianstad í Svíþjóð en í kvöld skoraði hann sex mörk í sigri liðsins á Ricoh, 31-27.

Ólafur gekk til liðs við Kristianstad á nýjan leik í síðustu viku eftir að hafa verið á mála hjá Hannover-Burgdorf í eitt og hálft ár. Þar áður var hann lykilmaður í sænska liðinu.

Sjá einnig: Ólafur snýr aftur til Svíþjóðar

Hann skoraði sex mörk, rétt eins og í kvöld, í sigri liðsins á Sävehof á sunnudag eftir að hafa æft með liðinu í aðeins nokkra daga.

Tandri Már Konráðsson skoraði sex mörk fyrir Ricoh í leiknum í kvöld og Magnús Óli Magnússon fimm. Kristinastad var skrefinu á undan allan leikinn og leiddi í hálfleik, 16-13.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×