Handbolti

Fer Guðjón Valur aftur til Löwen?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðjón Valur er 36 ára og hefur átt afar farælan feril.
Guðjón Valur er 36 ára og hefur átt afar farælan feril. Vísir/Getty
Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson er mögulega á leið aftur til Þýskalands ef marka má frétt vefmiðilsins handball-planet.com.

Í síðasta mánuði var greint frá því að Valero Rivera væri á leið til Barcelona í sumar en þá rennur samningur Guðjóns Vals við félagið út.

Sjá einnig: Guðjón Valur fær samkeppni hjá Barcelona

Löwen mun missa Uwe Gensheimer til PSG í sumar en félagið reyndi þá að klófesta Raul Santos frá Gummersbach. Austurríkismaðurinn valdi fremur að ganga til liðs við Kiel, sem missir Dominik Klein til Nantes.

Rivera er einmitt nú á mála hjá Nantes en þessi öflugi spænski landsliðsmaður snýr aftur til síns heimalands að tímabilinu loknu.

Guðjón Valur lék í tólf ár í Þýskalandi og eitt í Danmörku áður en hann gekk í raðir Barcelona í fyrra. Hann var á mála hjá Löwen frá 2008 til 2011.

Ekki náðist í Guðjón Val við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×