Körfubolti

Ekkert getur stöðvað Golden State

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stephen Curry er ótrúlegur leikmaður.
Stephen Curry er ótrúlegur leikmaður. vísir
Það var nóg að gerast í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en alls fóru fram ellefu leikir.

Meistararnir í Golden State Warriors eru enn taplausir í deildinni eftir frábæran sigur á Chicago Bulls, 106-94.

Stephen Curry fór enn einu sinni á kostum og gerði 27 stig fyrir Warriors.

New York Knicks vann frábæran sigur á OKC 93-90 í æsispennandi leik. Þá vann New Orleans Pelicans óvæntan sigur á San Antonio Spurs 104-90.

Öll úrslit næturinnar má sjá hér að neðan:

Detroit Pistons – Minnesota Timberwolves 96-86

San Antonio Spurs - New Orleans Pelicans 90-104

New York Knicks - Oklahoma City Thunder 93-90

LA Clippers - Porltand Trail Blazers 91-102

Chicago Bulls - Golden State Warriors 94-106

Philadelphia 76ers- Charlotte Hornets 88-113

Brooklyn Nets - Boston Celtics 95-120

Houston Rockets – Memphis Grizzlies 84-96

Utah Jazz - Dallas Mavericks 93-102

Phoenix Suns - Denver Nuggets 114-107

Toronto Raptors - LA Lakers 102-91

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×