Golden State jafnaði besta árangur sögunnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. nóvember 2015 06:37 Danilo Gallinari reynir að komast framhjá Draymond Green. vísir/Getty
Meistararnir í Golden State Warriors jöfnuðu í nótt met í NBA-deildinni er liðið vann Denver Nuggets á útivelli, 118-105. Golden State hefur þar með unnið alla fimmtán fyrstu leiki sína í deildinni en aðeins tvö lið í sögunni hafa byrjað jafn vel. Washington Capitols gerði það haustið 1948 sem og Houston Rockets árið 1993. Enginn meistari hefur hins vegar byrjað jafn vel og Golden State en með sigrinum í nótt tók liðið fram úr meistaraliði Boston Celtics frá 1957. Sigurinn í nótt var öruggur en eftir að Klay Thompson, sem skoraði 21 stig í nótt, kom Golden State yfir með þristi í öðrum leikhluta lét liðið aldrei aftur af forystuni. Steph Curry gat leyft sér að hvíla allan fjórða leikhlutann en hann skoraði nítján stig í leiknum. Hann hafði skorað minnst 20 stig í öllum hinum leikjum tímabilsins. Oklahoma City vann Dallas, 117-114, þar sem Russell Westbrook var með 31 stig og ellefu stoðsendingar. Hann skoraði tværlykilkörfur á lokamínútu leiksins en Dallas, sem hafði unnið sex leiki í röð, var með myndarlegt forskot í þriðja leikhluta. Portland vann LA Lakers, 107-93. Damien Lillard var með 30 stig og þrettán fráköst fyrir Portland. Kobe Bryant skoraði átján stig fyrir Lakers en nýtti aðeins sex af 22 skotum sínum í opnum leik.Úrslit næturinnar: LA Clippers - Toronto 80-91 Brooklyn - Boston 111-101 New Orleans - Phoenix 122-116 Oklahoma City - Dallas 117-114 Denver - Golden State 105-118 LA Lakers - Portland 93-107
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira