LeBron í sögubækurnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. nóvember 2015 07:48 LeBron James í leiknum í nótt. Vísir/GEtty
Cleveland er enn ósigrað á heimavelli í NBA-deildinni er liðið vann í nótt sigur á Orlando, 117-103. Kevin Love var stigahæstur í liði Cleveland með 34 stig. LeBron James var með fimmtán stig og þrettán stoðsendingar og komst með því í 25. sæti yfir stoðsendingahæstu leikmenn NBA-deildarinnar frá upphafi. Hann er alls kominn með 6395 stoðsendingar. Með þessu komst hann í hóp með Oscar Robertson en báðir eru nú þeir einu sem eru meðal efstu 25 manna í bæði stiga- og stoðsendingafjölda frá upphafi. Robertson endaði með 26.710 stig og er í ellefta sæti á listanum en James er með 25.259 stig í nítjánda sæti. Líklegt er að James taki fram úr Robertson í báðum tölfræðiþáttum áður en hann hættir. Oklahoma City vann Utah, 111-89. Kevin Durant var með 27 stig og sex fráköst en hann hafði misst af síðustu leikjum vegna meiðsla. Hann nýtti tíu af þrettán skotum sínum. Russell Westbrook var nálægt þrefaldri tvennu en hann var með 20 stig, sjö fráköst og níu stoðsendingar. Það hefði verið hans þriðja þrenna í vetur. Miami vann New York, 98-78, þar sem Dwayne Wade og Chris Bosh voru með sextán stig hvor. Nýliðinn Kristaps Porzingis átt enn og aftur góðan leik en hann var með 20 stig og fjórtán fráköst.Úrslit næturinnar: Charlotte - Sacramento 127-122 Cleveland - Orlando 117-103 Miami - New York 95-78 Milwaukee - Detroit 109-88 Minnesota - Philadelphia 100-95 San Antonio - Phoenix 98-84 Utah - Oklahoma City 89-111
NBA Mest lesið Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Fleiri fréttir Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Sjá meira