Handbolti

Fimmti sigur Kiel í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Duvnjak var markahæstur í liði Kiel í kvöld með níu mörk.
Duvnjak var markahæstur í liði Kiel í kvöld með níu mörk. vísir/getty
Kiel vann góðan sigur á Melsungen, 32-27, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Þetta var fimmti sigur Kiel í röð en lærisveinar Alfreðs Gíslasonar eru samt enn í 4. sæti deildarinnar, nú með 22 stig, sex stigum á eftir toppliði Rhein-Neckar Löwen.

Króatinn Domagoj Duvnjak fór mikinn í liði Kiel og skoraði níu mörk. Rune Dahmke var sömuleiðis öflugur með átta mörk úr aðeins níu skotum.

Johannes Sellin var markahæstur í liði Melsungen með sjö mörk en Marino Maric kom næstur með sex mörk.

Melsungen er í 2. sæti deildarinnar með 24 stig, fjórum stigum á eftir Löwen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×