Handbolti

Stefán Rafn skoraði eitt er Ljónin komu fram hefndum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Stefán Rafn skoraði eitt mark.
Stefán Rafn skoraði eitt mark. vísir/getty

Rhein-Neckar Löwen vann níu marka sigur á Kristianstad frá Svíþjóð, 29-20, í fyrsta leik níundu umferðar í B-riðli Meistaradeildarinnar í handbolta.

Leikurinn fór fram í Frankfurt, en SAP-Arena, heimavöllur Löwen, er upptekinn þessar vikurnar fyrir íshokkílið bæjarins.

Kristianstad kom verulega á óvart þegar það lagði Löwen, 32-29, í Svíþjóð, en sænska liðið átti ekki möguleika í kvöld þegar Ljónin komu fram hefndum.

Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði eitt mark úr tveimur skotum fyrir heimamenn, en leikstjórnandinn Andy Schidt var í miklum ham og skoraði ellefu mörk.

Alexander Petersson hvíldi mikið í kvöld eins og hann hefur verið að gera í Meistaradeildinni. Hann komst ekki á blað.

Rhein-Neckar Löwen er með 13 stig eins og Barcelona í B-riðlinum en Barca heldur þó toppsætinu og á leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×