Handbolti

Ljónin enn ósigruð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stefán Rafn Sigurmannsson.
Stefán Rafn Sigurmannsson. Vísir/Getty
Alexaner Petersson og Stefán Rafn Sigurmannsson skoruðu sitt markið hvor þegar lið þeirra, Rhein-Neckar Löwen, vann nokkuð öruggan sigur á Leipzig í kvöld, 28-22.

Löwen er enn með fullt hús stiga á toppi deildarinnar að loknum þrettán umferðum. Liðið er með sex stiga forystu á næsta lið, Melsungen.

Leikurinn í kvöld var jafn framan af en staðan að loknum fyrri hálfleik var 12-11, Löwen í vil.

Leipzig skoraði fyrstu tvö mörkin í síðari hálfleik en Löwen náði fljótt undirtökunum á ný. Heimamenn stungu svo af á síðustu tíu mínútum leiksins.

Á Spáni vann topplið Barcelona öruggan sigur á Benidorm, 36-17. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk fyrir Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×