Körfubolti

Sigurganga Golden State heldur áfram | Cleveland tapaði

Anton Ingi Leifsson skrifar
Curry var sjóðandi heitur í nótt.
Curry var sjóðandi heitur í nótt. vísir/getty
Golden State Warriors er óstöðvandi í NBA-körfuboltanum, en þeir unnu sinn ellefta leik í röð í nótt. Þeir hafa enn ekki tapað leik á tímabilinu. Stephen Curyr fór sem fyrr fyrir liði Warriors.

Brooklyn byrjaði betur og vann fyrsta leikhluta 36-21, en þá vöknuðu stríðsmennirnir og bitu frá sér. Þeir minnkuðu muninn í 54-52 fyrir hlé. Síðari hálfleikur var æsispennandi og þurfti að grípa til framlengingar þar sem Warriors voru sterkari; unnu framlenginguna 10-2 og leikinn 107-99.

Stephen Curry skoraði 34 stig fyrir Golden State en hann heldur uppteknum hætti frá því í fyrra þar sem hann var magnaður. Jarrett Jack gerði 28 stig fyrir Brooklyn sem hefur einungis unnið einn af fyrstu tíu leikjum sínum.

Cleveland tapaði í nótt fyrir Milwaukee, 108-105 eftir tvöfalda framlengingu. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 88-88 og 96-96 eftir framlengingu númer eitt. Milawukee vann svo aðra framlenginguna 12-9 og lokatölur urðu, eins og áður segir, 108-105.

LeBron James var semfyrr stigahæstur hjá Cleveland en hann skoraði 37 stig í leiknum. Jerryd Bayless og Michael Carter-Williams voru stigahæstir Milwaukee-manna með sautján stig, en þeir hafa unnið fimm leiki og tapað fimm. Þetta var annar tapleikur Cleveland í fyrstu átta leikjunum.

Það gengur ekki né rekur hjá Philadelphia 76ers, en í nótt töpuðu þeir sínum tíunda leik í röð. Þeir hafa tapað öllum leikjum sínum á tímabilinu. Í nótt lágu þeir fyrir San Antonio, en lokatölur urðu 92-83 eftir að hafa staðan hafi verið 76-60, San Antonio í vil, fyrir síðasta leikhlutann.

LeMarcus Aldridge gerði sautján stig fyrir San Antonio og hirti einnig nítján fráköst, en fyrir lánlausa Philadelpiu-menn skoraði Jahlil Okafor 21 stig og tók tólf fráköst.

Öll úrslit næturinnar og myndbönd frá tilþrifum næturinnar má sjá hér neðar í greinni.

Öll úrslit næturinnar:

Detroit - LA Clippers 96-101

Orlando - Washington 99-108

Dallas - Houston 110-98

Cleveland - MIlwaukee 105-108

Philadelphia - San Antonio 83-92

Denver - Phoenix 81-105

Brooklyn - Golden State 99-107

Topp-10 næturinnar: Curry á mótti Jarrett Jack í nótt: Andre Iguodala með mikilvægan þrist!:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×