Handbolti

Kiel komst upp í fjórða sætið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alfreð var líflegur á hliðarlínunni.
Alfreð var líflegur á hliðarlínunni. vísir/getty
Lið Alfreðs Gíslasonar, Kiel, vann afar mikilvægan útisigur gegn Wetzlar í kvöld.

Kiel alltaf skrefi á undan í leiknum og vann að lokum sanngjarnan sigur, 26-30.

Liðin höfðu þar með sætaskipti. Kiel komst upp í fjórða sætið og sendi Wetzlar í það fimmta. Kiel er sex stigum á eftir toppliði Rhein-Neckar Löwen sem hefur unnið alla leiki sína í deildinni.

Kiel hefur verið í smá basli það sem af er vetri enda miklar breytingar á liðinu. Það er þó ekki úr leik í baráttunni um meistaratitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×