Handbolti

Sögulegt kvöld hjá Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Valur í búningi Barca.
Guðjón Valur í búningi Barca. vísir/afp
Barcelona sló met á Spání í kvöld er liðið vann sinn 72. leik í röð í deildinni. Engu liði í sögu deildarinnar hefur tekist að sigra eins marga leiki í röð.

Að þessu sinni lagði Barcelona lið Teucro, 44-30.

Guðjón Valur Sigurðsson hafði óvneju hljótt um sig í kvöld en hann skoraði eitt mark úr tveimur skotum.

Yfirburðir Börsunga á Spáni hafa verið með ólíkindum síðustu ár og það er fátt sem bendir til þess að liðið muni tapa leik í deildinni í nánustu framtíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×