Handbolti

PSG á toppinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Róbert fékk ekki að spila í kvöld.
Róbert fékk ekki að spila í kvöld. vísir/afp
Lið Róberts Gunnarssonar, PSG, endurheimti toppsætið í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Liðið vann þá öruggan útisigur, 33-38, á Toulouse.

Líkt og síðustu vikur fékk Róbert ekkert að spila og komst þar af leiðandi ekki á blað. Nikola Karabatic var markahæstur með 8 mörk í kvöld. Luka Karabatic og Daniel Narcisse skoruðu fimm.

PSG er með 16 stig á toppnum en lið Arnórs Atlasonar, St. Raphael, er í öðru sæti með 15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×