Körfubolti

Harden heillum horfinn og Houston steinliggur í öllum leikjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
James Harden hefur verið ískaldur í upphafi tímabilsins.
James Harden hefur verið ískaldur í upphafi tímabilsins. Vísir/Getty
James Harden og lið hans Houston Rockets hafa byrjað tímabilið skelfilega í NBA-deildinni í körfubolta. Houston Rockets hefur tapað þremur fyrstu leikjum sínum á leiktíðinni og þeim öllum með 20 stigum.

Það dugði ekki einu sinni liðinu að komast 21 stigi yfir á móti Miami Heat í síðasta leik. Houston-liðið tapaði ekki aðeins forystunni heldur steinlá á endanum 109-89.

Houston tapaði síðustu 23 mínútum leiksins 65-24 og þetta stórtap bættist því við 20 stiga tap á móti Denver (85-105) og 20 stiga tap á móti Golden State (92-112).

En hver er ástæðan? Frammistaðan hjá stórstjörnu liðsins, James Harden, hlýtur að vera ein af stóru ástæðunum fyrir þessari matraðabyrjun.

Harden var með 27,4 stig að meðaltal á síðustu leiktíð og talaði sjálfur um það hann hefði átt að vera kosinn mikilvægasti leikmaður deildarinnar. Þau verðlaun hlaut aftur á móti Steph Curry hjá Golden State Warriors. Harden hefur gert alltaf en standa undir eigin mati í upphafi leiktíðar.

James Harden hefur verið heillum horfinn í þessum þremur leikjum en hann hefur skorað í þeim 18,0 stig að meðaltali. Það er þó hræðileg nýting sem sker sig úr.

James Harden hefur aðeins hitt úr 22 prósent skota sinna og aðeins 3 af 32 skota hans fyrir utan þriggja stiga línuna hafa ratað rétta leið. Þetta þýðir að þriggja stiga nýting kappans í fyrstu þremur leikjunum er aðeins 9,4 prósent.

Hittni Harden er meira að segja á niðurleið. Hann hitti úr 16,7 prósent þriggja stiga skota sinna í fyrsta leiknum á móti Denver (2 af 12), tíu prósent þriggja stiga skota sinna í öðrum leiknum á móti Golden State (1 af 10) en klikkaði síðan á öllum tíu þriggja stiga skotum sínum á móti Miami.

Harden hefur bjargað stigaskori sínu á vítalínunni þar sem hann hefur nýtt 27 af 31 skoti sínu (87,1 prósent) en helmingur stiga hans hafa komið á vítalínunni.

Verkefni kvöldsins hjá Harden og Houston Rockets liðinu er heimaleikur á móti Oklahoma City Thunder í nótt. Oklahoma City Thunder hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína á tímabilinu og verða erfiðir við að eiga í nótt.

Eintómt svekkelsi hjá James Harden.Vísir/Getty
NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×