Handbolti

Snorri Steinn og Ásgeir með tíu mörk saman í flottum sigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sjö mörk í kvöld.
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sjö mörk í kvöld. Vísir/AFP
Íslendingaliðið Nimes vann glæsilegan fjögurra marka sigur á einu af efstu liðum deildarinnar í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Nimes vann Montpellier 33-29 en Montpellier var fyrir leikinn búið að vinna 5 af fyrstu 6 leikjum sínum í deildinni.

Sigurinn kemur Nimes upp í fimmta sæti deildarinnar en liðið var aðeins búið að ná í eitt stig út úr tveimur síðustu leikjum sínum.

Snorri Steinn Guðjónsson var næstmarkahæstur hjá Nimes með 7 mörk úr 12 skotum en hann klikkaði á eina víti sínu í leiknum. Snorri Steinn átti einnig 3 stoðsendingar samkvæmt tölfræði frönsku deildarinnar.

Ásgeir Örn Hallgrímsson var með 3 mörk og 4 stoðsendingar í leiknum og Íslendingarnir voru því saman með tíu mörk og sjö stoðsendingar í þessum flotta sigri í kvöld.

Hinn tvítugi Steven George var markahæstur hjá Nimes með átta mörk en hann nýtti öll skotin sín í leiknum.

Nimes var 19-15 yfir í hálfleik og Snorri Steinn fór langt með innsigla sigurinn þegar hann kom liðinu sex mörkum yfir, 33-27, þegar rúmar tvær mínútur voru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×