Körfubolti

Flip Saunders er látinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flip Saunders var 60 ára þegar hann lést.
Flip Saunders var 60 ára þegar hann lést. vísir/getty
Flip Saunders lést um helgina en hann var þjálfari í NBA-deildinni í 17 tímabil en hann starfaði sem körfuboltaþjálfari í 35 ár. 

Saunders hafði barist við krabbamein undanfarna mánuði en hann var sextugur þegar hann lést.

Hann þjálfaði Minnesota Timberwolves, Detroit Pistons og Washington Wizards á sínum ferli í NBA-deildinni. Í NBA náði hann þeim árangri að vinna 634 leiki með sín lið. 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×