Körfubolti

Kobe setur met í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kobe Bryant er klár fyrir kvöldið.
Kobe Bryant er klár fyrir kvöldið. vísir/getty
Það er fastlega búist við því að Kobe Bryant verði í byrjunarliði LA Lakers í nótt gegn Minnesota.

Þetta verður 20. tímabil Bryant með Lakers og hann mun því setja met yfir flest tímabil í röð hjá sama félaginu. Hann stekkur fram fyrir John Stockton sem spilaði með Utah Jazz frá 1984 til 2003.

Bryant hefur verið að glíma við meiðsli en hann segist vera orðinn góður og til í slaginn í kvöld.

„Ég hef engar áhyggjur af þessum meiðslum enda hefur þetta verið á réttri leið," sagði hinn 37 ára gamli Kobe en hann hefur misst af meirihlutanum af síðustu þrem tímabilum vegna meiðsla.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×