Handbolti

Karen: Þurfum ekki að sigra heiminn í hverri sókn

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Karen í leik með íslenska landsliðinu.
Karen í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/ernir
„Stemmingin er góð. Hún er búin að vera góð alla vikuna og úrslit leiksins á fimmtudaginn komu mér svolítið á óvart eftir góðar æfingar dagana áður,“ sagði Karen Knútsdóttir, leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta, aðspurð eftir æfingu í dag hvernig stemmingin væri fyrir leik liðsins gegn Þýskalandi á morgun eftir tap gegn Frakklandi á fimmtudaginn.

„Það gefur augaleið að þegar þú skorar bara sautján mörk ertu ekki að vinna marga handboltaleiki og það kom mér á óvart hversu hrikalega lélegar við vorum á fimmtudaginn. Við áttum í raun aldrei séns gegn þessu sterka liði Frakklands.“

Karen vonaðist til þess að það kæmi betra flæði í sóknarleikinn á morgun.

„Ágúst hefur talað um að vera rólegri á boltanum og taka kannski 1-2 sendingar í viðbót í stað þess að vera að reyna að sigra heiminn í hverri sókn. Við þurfum meira flæði og að skila boltanum betur, þá verður sóknarleikurinn mun betri.“

Karen vonaðist til þess að varnarleikurinn myndi halda betur á morgun sem myndi skila sér í betri markvörslu.

„Þetta eru heimsklassa leikmenn sem við erum að spila við og þegar vörnin er ekki til staðar erum við ekki að hjálpa Floru í markinu. Þegar vörnin kemur hrekkur hún í gang og þá fáum við vonandi hraðaupphlaupsmörk.“

Karen segir að leikmenn liðsins hafi gert sér grein fyrir því að fyrsti leikurinn yrði sá erfiðasti í riðlinum.

„Erfiðasti leikurinn fyrirfram var gegn Frakklandi á útivelli og það var erfitt að byrja á að fá þessa blautu tusku en við getum vonandi nýtt okkur það í næstu leikjum.“


Tengdar fréttir

Þurfum að laga sóknina

Stelpurnar okkar í íslenska handboltalandsliðinu mæta Þýskalandi í öðrum leik liðsins í undankeppni EM 2017, en sá fyrsti tapaðist gegn firnasterku liði Frakklands á fimmtudagskvöldið. Þjóðverjar eru með sterkt lið sem er vant því að vera á stórmótum.

Ágúst: Of margar sem spiluðu undir getu í dag

Ágúst Jóhannsson, þjálfari íslenska landsliðsins í handbolta, var að vonum vonsvikinn með 10 marka tap, 27-17, fyrir Frökkum í undankeppni EM 2016 í Frakklandi í dag.

Rut: Komum ákveðnari til leiks á morgun

Rut Jónsdóttir segir að íslenska landsliðið sé ákveðið í að gera mun betur í leiknum gegn Þýskalandi á morgun og að það hefjist á að bæta sóknarleik liðsins.

Tíu marka tap í Frakklandi

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta hóf undankeppni EM 2016 á 10 marka tapi, 27-17, fyrir Frakklandi í Antibes í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×