Handbolti

Haukar sigu framúr undir lokin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Janus Daði fór illa með makedónsku varnarmennina í leikjunum tveimur.
Janus Daði fór illa með makedónsku varnarmennina í leikjunum tveimur. vísir/vilhelm
Haukar eru komnir í 3. umferð EHF-bikarsins í handbolta eftir 63-44 samanlagðan sigur á makedónska liðinu Zomimac.

Leikurinn í dag var formsatriði eftir stórsigur Hauka í fyrri leiknum í gær, 34-20.

Leikurinn í dag var mun jafnari en Haukar sigu framúr undir lokin og unnu á endanum fimm marka sigur, 24-29.

Janus Daði Smárason var markahæstur í liði Hauka í dag með níu mörk en hann skoraði samtals 19 mörk í leikjunum tveimur. Brynjólfur Snær Brynjólfsson kom næstur með sjö mörk.

Mörk Hauka:

Janus Daði Smárason 9, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 7, Adam Haukur Baumruk 3, Egill Eiríksson 2, Heimir Óli Heimisson 2, Einar Pétur Pétursson 2, Leonharð Harðarson 2, Jón Þorbjörn Jóhansson 1, Tjörvi Þorgeirsson 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×