Handbolti

Holstebro slapp áfram í EHF-bikarnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sigurbergur skoraði samtals fjögur mörk í leikjunum gegn Sporting.
Sigurbergur skoraði samtals fjögur mörk í leikjunum gegn Sporting. mynd/team tvis holstebro
Sigurbergur Sveinsson, Egill Magnússon og félagar í danska liðinu Team Tvis Holstebro eru komnir í 3. umferð EHF-bikarsins í handbolta eftir eins marks samanlagðan sigur á portúgalska liðinu Sporting, 64-63.

Sigurbergur skoraði þrjú mörk í fimm marka sigri, 36-31, Holstebro í fyrri leiknum í Danmörku á sunnudaginn.

Portúgalarnir höfðu svo betur á sínum heimavelli í kvöld, 32-28, og vantaði því aðeins eitt mark til að slá Danina úr leik.

Sigurbergur skoraði eitt marka Holstebro í kvöld en Egill var ekki í leikmannahópi liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×