Handbolti

Góður útisigur hjá PSG

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Karabatic og Hansen skoruðu samtals 17 mörk í dag.
Karabatic og Hansen skoruðu samtals 17 mörk í dag. vísir/afp
Paris Saint-Germain vann góðan útisigur á Celje Pivovarna Lasko í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag. Lokatölur 30-32, PSG í vil, en staðan í hálfleik var 15-16.

PSG er komið upp í 2. sæti A-riðils en frönsku meistararnir eru með átta stig eftir fimm leiki, einu stigi á eftir Aroni Pálmarssyni og félögum í Veszprém sem unnu Kiel á heimavelli í gær.

Nikola Karabatic og Mikkel Hansen fóru fyrir liði PSG í dag og skoruðu samtals 17 mörk, Karabatic níu og Hansen átta. Róbert Gunnarsson komst ekki á blað.

Sime Ivic skoraði mest fyrir Celje, eða átta mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×