Körfubolti

LeBron James: Meira af ást í Cleveland í vetur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James og Kevin Love.
LeBron James og Kevin Love. Vísir/EPA
LeBron James gaf það út í viðtali við ESPN að hann og liðsfélagar hans ætli að gera sitt í því að reyna að koma Kevin Love í stærra hlutverk hjá Cleveland Cavaliers á komandi NBA-tímabili.

Kevin Love og LeBron James spiluðu sitt fyrsta tímabil saman með Cleveland Cavaliers á síðustu leiktíð en það endaði ekki vel þegar Love meiddist illa á öxl snemma í úrslitakeppninni.

Kevin Love var allt í öllu hjá Minnesota Timberwolves tímabilið á undan en tölurnar hans hrundu þegar hann kom til Cavaliers í fyrra. Hann fór út því að vera með 26,1 stig, 12,5 fráköst og 4,4 stoðsendingar að meðaltali í leik í það að vera með 16,4 stig, 9,7 fráköst og 2,2 stoðsendingar í leik.

„Ég held að honum líði betur núna. Hann er búinn að fá eitt ár til að aðlagast og veit betur til hvers er ætlast af honum. Ég býst við stórum hlutum frá honum," sagði LeBron James við ESPN.

LeBron James gagnrýndi Love á miðju síðasta tímabili og David Blatt, þjálfari liðsins, setti Love nokkrum sinnum á bekkinn í lokin á jöfnum leikjum. Þeir báðir hafa hinsvegar verið duglegir að tala vel um Love fyrir þetta tímabil og sjá fyrir sér stærra hlutverk fyrir hann á komandi tímabili.

„Ég er viss um að hann gerir meira af því sem hann var að gera fyrir síðasta tímabil," sagði James.

Kevin Love virtist loksins vera búinn að finna taktinn þegar hann fór út axlarlið eftir átök við Boston-manninn Kelly Olynyk í úrslitakeppninni. Love missti því af því þegar Cavs-liðið fór alla leið í lokaúrslitin. Kevin Love skrifaði pistil í blað leikmannasamtaka NBA-deildarinnar þar sem hann hrósaði liðsfélögum sínum fyrir frammistöðuna í úrslitakeppninni þar sem liðið lék hans.

Kevin Love gat yfirgefið Cleveland en ákvað að vera áfram og skrifaði undir nýjan fimm ára og 110 milljón dollara samning við Cleveland Cavaliers í sumar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×