Handbolti

Lauflétt hjá Midtjylland

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vignir skoraði þrjú mörk í kvöld.
Vignir skoraði þrjú mörk í kvöld. vísir/ernir
Vignir Svavarsson og félagar hans í Midtjylland unnu risasigur, 36-19, á Skive í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Vignir skoraði þrjú mörk og úr þremur skotum í kvöld en Kasper Kvist var markahæstur í liði Midtjylland með sjö mörk.

Staðan var 17-11 í hálfleik en seinni hálfleikurinn var eign Midtjylland sem hóf hann með 5-1 kafla og náði þar með 10 marka forystu, 22-12. Þegar uppi var staðið munaði 17 mörkum á liðunum, 36-19.

Þetta var annar sigur Midtjylland í röð en liðið er í 6. sæti deildarinnar með sex stig eftir fimm leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×