Fleiri áhættuatriði, takk Jónas Sen skrifar 19. ágúst 2015 10:45 Louis Armstrong
Lokatónleikar Djasshátíðar Reykjavíkur í Norðurljósum í Hörpu sunnudaginn 16. ágúst. Hljómsveit: Snorri Sigurðarson, Haukur Gröndal, Einar Jónsson, Anna Gréta Sigurðardóttir, Matthías Hemstock og Tómas R. Einarsson. Söngur: Sigtryggur Baldursson og Ragnheiður Gröndal Það var enginn smáræðis hvalreki fyrir íslenskt tónlistarlíf þegar Louis Armstrong hélt tónleika á Íslandi. Nú eru 50 ár síðan og þess var minnst á lokatónleikum Djasshátíðar Reykjavíkur á sunnudaginn. Djassinn almennt trekkir ekki að jafn marga tónleikagesti og poppið, en Norðurljósasalurinn í Hörpu var troðfullur. Það var greinileg eftirvænting í salnum áður en tónleikarnir byrjuðu. Kannski gerði mannfjöldinn suma taugaóstyrka. Vernharður Linnet var kynnir á tónleikunum og sagði frá komu Armstrongs til landsins. Hann virkaði dálítið óðamála. En hann sagði samt skemmtilega frá og vissi greinilega allt um tilurð heimsóknarinnar. Það var Knattspyrnudeild Víkings sem stóð fyrir tónleikunum í fjáröflunarskyni. Nokkrum dögum á undan barst tilkynning frá Joe Glaser, umboðsmanni Armstrongs. Glaser var í tengslum við Mafíuna og allir voru hræddir við hann. Hann heimtaði 25 þúsund dollara tryggingu fyrir greiðslu til Armstrongs. Annars yrðu tónleikarnir blásnir af. Þjálfari Víkings veðsetti íbúðina sína til að eiga fyrir tryggingunni. Þetta var Eggert Jóhannesson, betur þekktur sem Eddi þjálfari. Nostalgía sveif yfir vötnunum á tónleikunum í Hörpu. Armstrong var einn dáðasti tónlistarmaður sögunnar og það að endurskapa stemninguna í kringum heimsóknina hans er ekki heiglum hent. Tveir menn brugðu sér í hlutverk Armstrongs, Snorri Sigurðarson trompetleikari og Sigtryggur Baldursson sem söng fáein lög. Snorri var frábær. Trompetleikurinn hans var tær og lifandi, kröftugur og skemmtilegur. Ekki er hægt að gefa Sigtryggi, þeim mikla snillingi, eins góða einkunn. Sennilega var hann bara ekki í formi. Söngurinn var óttalega stirður og hefði mátt vera hreinni. Þetta var talsverður ljóður á tónleikunum. Meira var varið í söng Ragnheiðar Gröndal. Hann var tæknilega pottþéttur, hreinn og öruggur, tilfinningaþrunginn og grípandi. Hljómsveitin í heild var líka með sitt á hreinu. En maður tók aldrei andköf af hrifningu, nema kannski helst þegar trompetleikarinn blés sem mest hann mátti. Fleiri áhættuatriði í sólóunum hjá hinum hefðu verið æskileg. Til dæmis hröð tónahlaup frá píanóleikaranum eins og þau sem Art Tatum hristi fram úr erminni af minnsta tilefni. Það vantaði meiri lit í leik hljómsveitarinnar, meiri spennu. Hugsanlega var hápunktur tónleikanna lokalagið, Oh When the Saints. Það vakti svo mikla lukku að það var endurtekið. Blásararnir í hljómsveitinni marseruðu um salinn á meðan þeir spiluðu. Það var í eina skiptið sem maður fékk virkilega gæsahúð á tónleikunum, því miður.Niðurstaða: Söngurinn var nokkuð misjafn og hljóðfæraleikurinn var full varfærnislegur.
Menning Tónlistargagnrýni Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira