Íslensk mæðgin slá í gegn í herferð Zöru Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 25. nóvember 2025 10:01 Kristín Lilja og Ari Ágústsson glæsileg mæðgin í herferð tískurisans Zöru. Zara Kids Fyrirsætan og lögfræðingurinn Kristín Lilja Sigurðardóttir hefur komið víða við í módelbransanum og tekið þátt í ýmsum verkefnum úti í heimi. Þar á meðal hefur hún nokkrum sinnum setið fyrir hjá tískurisanum Zöru ein, með eldri syni sínum Andra og nú í nýjustu herðferð fyrirtækisins slær Kristín Lilja í gegn með yngri syninum Ara.
Kristín Lilja, sem er fædd árið 1997, og sambýlismaður hennar Ágúst Örn eiga saman þessa tvo drengi en Ari fæddist 6. maí síðastliðinn og er ungur farinn að stíga sín fyrstu skref í bransanum en móðirin segir ótrúlega skemmtilegt að geta tekið svona verkefni saman. View this post on Instagram A post shared by KRISTÍN LILJA SIGURÐARDÓTTIR👽 (@kristinliljas) Í viðtali á Vísi í haust ræddi hún spennandi verkefni sem voru fram undan og sagðist elska að geta tvinnað saman lögfræðinni, móðurhlutverkinu og fyrirsætustarfinu. Þá hafi áhugi samstarfsaðila frekar aukist en ella í kjölfar móðurhlutverksins. Kristín Lilja og Ari tóku sig einstkalega vel út í myndatökunni.Zara Kids „Ég hugsaði ekkert að þessi ferill væri búinn þegar ég var ólétt en einbeitti mér kannski frekar að lögfræðinni. Núna er tískubransinn líka þannig að það er í auknum mæli verið að leita að eldri konum. Konur yfir sextugt eru í dag að ganga tískupallana líka en það er líka sá aldur sem er kúnnahópurinn, ekki tvítugar stelpur og auðvitað meikar það sens, það er mikilvægt að ná til kúnnans,“ sagði hún meðal annars við Vísi. Instagram síða Zöru Kids birti í gær myndir af Kristínu Lilju og Andra og fór sú myndataka fram hér á Íslandi. Instagram síðan er með um 2,5 milljónir fylgjenda. View this post on Instagram A post shared by Zara Kids (@zarakids)
Tíska og hönnun Íslendingar erlendis Mest lesið Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Lífið Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Lífið Ingibjörg Sólrún steig trylltan dans Lífið Chappell Roan elskar Fischersund Tíska og hönnun Stjörnulífið: Á rassinum með ref Lífið „Þrjátíu og eitt ár síðan stuðboltinn Bakkus sagði mér upp“ Lífið Skotið á hús Rihönnu í Beverly Hills Lífið Þolir ekki þegar kærastinn talar um tilfinningar Lífið Hver er maðurinn? Lífið Þriggja daga leikhús fáránleikans Lífið Fleiri fréttir Chappell Roan elskar Fischersund Tískan vopnið í keppni gegn krabbameini Slakur með 62 milljón króna hálsmen Björk glæsileg í indverskri hönnun Segir nei takk við jakkafatapésana Best klæddu pör sögunnar Björn skellti sér strax í sokkana Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Sjá meira