Körfubolti

Silver: Einn daginn verður kona aðalþjálfari í NBA

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hammon, sem er bæði með rússneskan og bandarískan ríkisborgararétt, lék með Rússlandi á Ólympíuleikunum 2008 og 2012.
Hammon, sem er bæði með rússneskan og bandarískan ríkisborgararétt, lék með Rússlandi á Ólympíuleikunum 2008 og 2012. vísir/afp
Eins og fram kom á Vísi fyrr í vikunni stýrði Becky Hammom San Antonio Spurs til sigurs í sumardeild NBA á dögunum. Það væri ekki í frásögur færandi nema hvað Hammon er fyrsta konan til að stýra liði í sumardeild NBA.

Hammon, sem er 38 ára, var ráðinn aðstoðarþjálfari San Antonio fyrir síðasta tímabil og varð þar með fyrsta konan sem fær fastráðningu sem aðstoðarþjálfari í einum af fjórum stærstu atvinnumannadeildunum í Bandaríkjunum.

Hammon spilaði 16 tímabil í WNBA-deildinni, fyrst með New York Liberty og svo með San Antonio Stars. Sumarið 2013 sleit hún krossband í hné og nýtti tímann meðan hún var frá til að fylgjast með æfingum og leikjum hjá San Antonio Spurs þar sem hún fékk nasaþefinn af þjálfun.

Hammon, sem var sex sinnum valin til að spila í Stjörnuleik WNBA, fékk svo fastráðningu hjá Spurs í ágúst í fyrra en hún er í miklum metum hjá Gregg Popovich, hinum sigursæla þjálfara San Antonio. Hann gaf Hammon svo tækifæri til að stýra liði Spurs í sumardeild NBA, þar sem minni spámenn og nýjir leikmenn fá að spreyta sig.

Adam Silver, forseti NBA, segir að fleiri konur muni feta sömu slóð og Hammon og það styttist í að kona verði ráðin sem aðalþjálfari liðs í deildinni.

„Þetta er alveg eins og með mig, ef þú færð ekki tækifæri geturðu ekki sýnt hvers þú ert megnugur,“ sagði Silver sem tók við sem forseti NBA af David Stern í fyrra.

„Ég er gríðarlega stoltur af henni og af leikmönnunum sem sáu að hún er fyrsta flokks þjálfari og tóku henni vel.

„Þjóðfélagið hefur breyst mikið, bara á síðasta áratugnum, og þetta er enn ein hindrunin sem konur munu yfirstíga,“ sagði Silver sem segir Hammon vera góða fyrirmynd.

„Hún er frumkvöðull og ég held að það sé ekki hægt að biðja um heilsteyptari einstakling; fyrrverandi leikmaður sem kann leikinn út og inn og er fær um að starfa hjá jafn öflugu félagi og Spurs er.“

San Antonio féll úr leik fyrir Los Angeles Clippers í fyrstu umferð úrslitakeppninnar á síðasta tímabili. Liðið hefur styrkst mikið í sumar með tilkomu LaMarcus Aldridge og David West og ljóst er að Spurs mun gera harða atlögu að meistaratitlinum næsta vor.

NBA

Tengdar fréttir

Aldridge til Spurs

LaMarcus Aldridge er á leið til San Antonio Spurs í NBA-körfuboltanum, en hann greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni í kvöld. Hann kemur til Spurs frá Portland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×