Glamour

Föstudagslagið: Spice Girls ábreiða frá MØ

Ritstjórn skrifar
MØ á Secret Solstice í Reykjavík í sumar
MØ á Secret Solstice í Reykjavík í sumar Glamour/Rakel Tómas
Föstudagslagið hjá Glamour er að þessu sinni frá dönsku tónlistarkonunni MØ og er ábreiða af hinum stórskemmtilega lagi Say You´ll Be There eftir stúlknasveitina frægu Spice Girls. 

MØ heillaði gesti tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice fyrr í sumar með dillandi tónlist og líflegri sviðsframkomu. 

Þetta lag er tilvalið að skella á fóninn í upphitun fyrir helgina framundan og mögulega syngja með fyrir þá sem voru einu sinni eldheitir aðdáendur Spice Girls. 

Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - ekki gleyma að tryggja þér eintak!



Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér. 


Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.


 



×