Glamour

Er Cara að hætta sem fyrirsæta?

Ritstjórn skrifar
Cara Delevingne
Cara Delevingne
Breska ofurfyrirsætan Cara Delevingne er, ef marka má sögusagnir, að hætta að starfa sem fyrirsæta. 

Sagt er að hún sé hætt hjá umboðsskrifstofunni Storm Model Management og ætli að yfirgefa fyrirsætuheiminn og einbeita sér að leiklistinni.

Hún fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Paper Towns sem verður frumsýnd verður í næsta mánuði.

Cara hefur meðal annars setið fyrir hjá YSL, Tom Ford, Stella McCartney, Burberry og Chanel.



×