Cara vinnur að tónlist með Nile Rodgers Ritstjórn skrifar 24. júní 2015 17:45 Cara Delevingne.
Tónlistarmaðurinn góðkunni Nile Rodgers ku vera að aðstoða fyrirsætuna Cöru Delevingne að taka upp sína fyrstu plötu. Cara hefur hingað til verið hvað best þekkt fyrir sigra sína í fyrirsætuheiminum en sögusagnir hafa verið að ganga þess efnis að hún ætli að leggja þann feril á hilluna til að einbeita sér að leiklistinni og greinilega tónlistinni líka. Þessa dagana er hún að kynna myndina Paper Town þar sem hún fer með aðalhlutverkið ásamt leikaranum Nat Wolf en hún er með hlutverk í sjö öðrum kvikmyndum sem eru frumsýndar á þessu ári og næsta. Það verður forvitnilegt að fylgjast með tónlistarferli Cöru en Nile Rodgers ber henni vel söguna í viðtali við The Sun og segir alvöru rokkara vera í fæðingu. Samkvæmt Instagramreikning fyrirsætunnar eru þau orðnir góðir vinir. Cara og Nile Rodgers. #NileRodgers #Chic #Legend #HydePark A photo posted by Cara Delevingne (@caradelevingne) on Jun 22, 2015 at 12:01pm PDT Fylgstu með Glamour á Facebook og Instagram.
Mest lesið David Beckham leikur í sinni fyrstu kvikmynd Glamour Þreytti frumraun sína á hátískuvikunni fyrir Chanel Glamour Louis Vuitton 195 ára í dag Glamour Vertu örugg í öllu svörtu Glamour Katie Holmes og Jamie Foxx eru saman Glamour 9 atriði til að hafa í huga þegar ráðist er í framkvæmdir á heimilinu Glamour Lagerfeld í hótelbransann Glamour Penelope Cruz mun leika Donatellu Versace Glamour Óskarinn 2017: Verst klæddu stjörnurnar Glamour Fara strákarnir að stelast í snyrtibudduna? Glamour